föstudagur, febrúar 11, 2005

Can take my eye

Þegar ég var að bursta í mér tennurnar í gærkveldi datt mér í hug lítið myndbrot. Ég hafði stuttu fyrr verið að horfa á myndband í sjónvarpinu með Damien Rice. Frekar leiðinlegt lag sem ég veit ekki hvað heitir en í því endurtekur hann tregafullt línuna ,,can´t take my eyes offa you” aftur og aftur og aftur. Eins og sumir vita sem lesa þessa síðu þá er ég með gerviauga sem ég tek úr mér á kvöldin áður en ég fer að sofa, fyrir mér er þetta óskaplega hversdagsleg athöfn en fyrir örðum getur þettað virkað skrítið og jafnvel óðeðfellt. Þess vegna flaug mér í hug þetta myndbrot þar sem einhver gaur (leikin af mér af augljósum ástæðum) er inná baði hjá sér og er að eitthvað að dunda sér eins og gengur og gerist, hummandi þetta lag. Áhorfendur halda kannski að hann sé ástfanginn eða í ástorsorg en allt í einu en mjög hversdagslega tekur hann út úr sér augað og leggur það frá sér á vaskinn eins og ekkert sé eðlilegra. Held að þetta gæti orðið nokkuð kröftugt atriði. Vekur upp ýmsar spurningar eins og hvað er eðlilegt og hvað er hversdagsleiki?

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ekki vissi ég að þú værir með gerfiauga, en takk fyrir að kíkja á blogið mitt,
þakkaðu Þóru fyrir matinn um daginn
kv. skarphéðinn

18 febrúar, 2005 21:07  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er nú allt ágætt Geiri minn en ætlarðu ekki að fara að koma heim? Ég er farin að sakna þín og börnin líka

24 febrúar, 2005 09:44  
Blogger grunar said...

SIGURGEIR?!!

24 febrúar, 2005 18:52  
Blogger grunar said...

Já, og annað: Hvaðan er lagið "Hvað skal með sjómann" upprunnið, og hvað er það til á mörgum tungumálum?

24 febrúar, 2005 18:53  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú þarft ekkert að vera að koma heim. Ég er búin að finna mér nýjan mann og hann kann sko að koma fram við konur. Annað en þú, dóninn þinn.

07 mars, 2005 12:37  
Blogger sigurgeir said...

er það ekki írskt. það er örugglega líka til á dönsku. það vill svo til að ég er að hlusta á það akkúrat núna alveg óvart.
Og kristín hver sem þú ert, þá er þetta orðin þreyttur og leiðinlegur brandari

08 mars, 2005 23:06  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja góði. Þá segi ég ekki fleiri brandara hér. Vertu sæll! (og mér fannst þetta bara mjög fyndið)

09 mars, 2005 16:32  
Blogger sigurgeir said...

HVER ERT ÞÚ!

10 mars, 2005 10:55  
Blogger sigurgeir said...

sko mér fannst þetta líka mjög fyndið, ég bara missti mig í smá paranóíu þarna, endilega gerðu smá meira grín

11 mars, 2005 12:43  

Skrifa ummæli

<< Home