föstudagur, ágúst 11, 2006

Draumur

Þetta dreymdi mig í nótt

Við ákváðum að labba í gegnum skóginn niður að vatninu. Við löbbuðum út á nes nokkurt og biðum í fjörunni. Ég vissi ekki nákvæmlega eftir hverju við vorum að bíða, en það var eitthvað magnað, eitthvað stórkostlegt, eitthvað yfirnáttúrulegt. Það var einhver dulmagnaður kraftur sem lá yfir vatninu en eitthvað hættulegt bjó í loftinu. Skyndilega sneri hann sér að mér og sagði: -varstu búinn að átta þig á þessu-, og benti yfir öxlina á bakvið sig. Ég hrökk í kút því þar hékk niður úr trjánum lík af manni á löppunum, blóð lak úr vitum hans. Í eitt augnablik áttaði ég mig ekki á því hver þetta var en allt í einu rann upp fyrir mér ljós, þetta var hann! -Já þetta er ég-,sagði hann, og um leið og hann mælti þetta sveipaðist andlit hans djöfullegu glotti. Ég gjörsamlega fraus þar sem ég stóð í fjörunni og kaldur sviti lak niðreftir mjóbakinu. Hann stóð þráðbeinn og glápti á mig með þessum ójarðneskjulega svip og skyndilega byrjaði hann að dragast ofaní vatnið hægt og rólega, ennþá þráðbeinn eins og vofan sem hann var. Að lokum hvarf hann alveg og það síðasta sem ég sá var þetta tryllingslega, ójarðneskjulega, djöfullega glott.

Og by the way í draumnum var ég hinn maðurinn, sem sagt draugurinn. Ég vaknaði þegar ég var kominn á kaf í vatnið

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

vó! dark draumur. svona myndi ég lesa í hann:
Ef þú ert bæði sá sem hékk í trénu ,sá sem benti þér á hann og þú sjálfur auðvitað, þá eru þetta skilaboð frá þér til þín. Þú gætir verið að reyna að segja sjálfum þér frá einhverju sem þú vanrækir, bælir niður eða afneytar. Ef þú villt fá nánari greiningu á þessum annrs mjög innihaldsríki draumi..kostar það eitt lítið Eurovision partý.
kv, Kiddy

07 maí, 2007 14:57  

Skrifa ummæli

<< Home